Daginn.
Jæja það er ýmislegt búið að gerast í lífinu síðan
síðast til dæmis þá var ég að dúlla mér með stelpu og leið bara
bísna vel, ættlaði af fara að kaupa húsbíl og íbúð eða kannski ekki
húsbíl og bara leigja íbúð en já það gekk bara allt vel en svo á no
time var það bara búið og því miður í pínu illu en vona samt að við
eigum eftir að verða vinir áfram en allavega þá fóru öll plön út um
gluggan en þá komu ný plön s.s. það að ég flutti út eftir allt
saman og gisti nú geymslur littla hrauns gegn vægu gjaldi... jújú
ég snappaði og reyndi að drepa fólk á Húsavík og kveikti í húsinu
með kvikindunum inni...
Uuuuu kannski ekki allveg en pæla í þjóðfélaginu í dag fokkin
klikkun rétt fyrir framan nefið á mannig og engin getur gert neitt
í þessu, þetta er bara lífið fáránlegt allveg...
Heyrðu ég er farinn að leigja með Gumma bróðir á Berghóli og er
kominn í þrefallt stærra herbergi en ég var í þannig að ég er með
þokkalegt víðáttubrjálæði hérna.. og svo var ættlunin að fá sér
nýjan bíl núna en það gekk ekki upp þannig að ég er enn að leita og
ef eikker vill kaupa bílinn minn þá er það bara guðvelkomið gegn
góðu verði..
jæja nú er ég búinn að vera að horfa á hálfa MATRIX no.1 og er
ennþá jafn sérstök og öll hin skiftin...
veit hreinlega ekki hverju ég á að ropa frá mér lengur þannig að
ég ættla að segja þetta gott í bili og eitt aðeins
EITT viljiði kvitta eftir ykkur börnin góð. fátt
leiðinlegra enn að vita til þess að nokkrir koma hingað en marr
veit ekki hver bara bögg skomm
Takk Fyrir Kaffið.
Pétur.